Tenglar

Hörpustrengir


Smelltu á hörpuna til
að komast í skráarsafnið.

  

  

Grein úr Morgunblaðinu, febrúar 2010


Eftir Helga Snæ Sigurðsson

helgisnaer@mbl.is

Ný heimildarmynd Þorsteins J. og Veru Sölvadóttur, Burkina Faso 8.600 km, verður frumsýnd 25. febrúar nk, á vefsíðu Þorsteins, thorsteinnj.is. Í myndinni er rakin stórmerkileg saga hjónanna Hinriks og Gullýjar, sem ákváðu að kaupa tvo notaða jeppa í Kópavogi og flytja þá í skipi til Rotterdam og keyra þá þaðan til Burkina Faso. Þar seldu þau annan jeppann og notuðu peningana til að fjármagna skólastarf á vegum ABC-hjálparsamtakanna, í þessu þriðja fátækasta ríki heims. Þá fléttast inn í söguna saga Brasilíumannsins Paulo sem býr á Hvolsvelli en hann fylgdi þeim Hinriki og Gullý til Burkina Faso.

Út í buskann

Þorsteinn segir myndina fjalla um afstöðu og samanburð á tveimur ólíkum kreppum, á Íslandi og í Burkina Faso. "Það sem hreif mig í upphafi, þegar ég frétti af þessu ferðalagi þessara hjóna, var að þetta var bara eins og ferð út í bláinn, út í buskann, án upphafs og endis. Þetta er ein af þessum hugmyndum sem maður fær tilfinningu fyrir að geti orðið að einhverju. Þannig að ég talaði við Veru Sölvadóttur sem talar frönsku og það er náttúrulega ómissandi þar sem þetta eru allt franskar nýlendur, og gekk frá fluginu til Dakar í Senegal og svo lögðum við bara af stað," segir Þorsteinn. Þau hafi í sjálfu sér ekki vitað neitt út í hvað þau voru að fara. "Það er eitthvað í þessu ferðalagi þeirra og afstöðu til þessa verkefnis sem er kjarninn í þessari mynd."

Þorsteinn segist hafa verið áður i Afríku og segir það auðvitað stórmerkilegt að bera saman þessa tvo ólíku heima, þriðja fátækasta land heims, Burkina Faso í Vestur-Afríku og Ísland. "Þetta að draga fram lífið og möguleikar til þess að lifa lífinu eru mjög ólíkir á þessum tveimur stöðum," segir Þorsteinn. En það sé ekki sanngjarnt að bera það saman.

Heldur hjálparstarf en golf með eldri borgurum

Verðmætamatið er býsna ólíkt ...

"Já, það er mjög ólíkt en það er líka krítík sem þau fá þrjú í myndinni; Hinrik og Gullý og Paolo, þ.e. af hverju þau séu ekki að hjálpa til hérna á Íslandi frekar en að keyra alla leið til Afríku. Þeirra afstaða byggist kannski á því að þetta er þeirra köllun. Þau töpuðu sjálf peningum í kreppunni, í Landsbankanum, en þeirra afstaða er einhvern veginn þessi: við viljum leggja okkar af mörkum þarna, það skiptir máli."

Hvaða fólk er þetta, Hinrik og Gullý?

"Þetta eru hjón úr Fljótshlíðinni, hafa verið í og tengdust í marga áratugi hvítasunnustarfinu þarna á svæðinu. Þau vildu frekar gera gagn í heiminum heldur en að spila golf með eldri borgurum," svarar Þorsteinn. Þeim hjónum hafi tekist að selja annan jeppann og leggja andvirði nokkur hundruð þúsund króna í skólastarf ABC. "Það tók óratíma að selja því það er náttúrlega kreppa þarna niður frá líka," segir Þorsteinn.

Ástæðulaust að bíða

Eins og fyrr segir verður myndin frumsýnd á vef Þorsteins og hann spáir því að hún fari á einhverjar kvikmyndahátíðir og í sjónvarpið að lokum, "ef RÚV leyfir". "Ástæðan fyrir því að við setjum þetta á vefinn strax er að þetta er svona mynd sem talar beint inn í þennan samtíma núna og það er fullkomlega ástæðulaust að láta hana bíða til næstu eða þarnæstu vetrardagskrár í sjónvarpinu," segir Þorsteinn. "Ég held að við þurfum að skoða þetta sem hefur verið í gangi hér síðustu 2-3 ár út frá ólíkum sjónarhornum, til að skilja eða reyna að botna eitthvað í því sem hefur gerst hérna. Og ég held að í þessu sé ákveðin hvatning, að við skoðum hvað við getum lagt af mörkum til heimsins, ekki bara hvað við getum fengið."

thorsteinnj.is






Flettingar í dag: 61
Gestir í dag: 44
Flettingar í gær: 345
Gestir í gær: 147
Samtals flettingar: 77392
Samtals gestir: 34569
Tölur uppfærðar: 31.7.2010 06:37:17