Til Alsheljarnefndar Alþingis
Það er álit hvítasunnukirkjunnar að ekki sé þörf á nýrri hjúskaparlöggjöf. Sú sem fyrir er fellur vel að skilningi kristinna manna á því að hjúskapurinn og hjónabandið er stofnun milli karls og konu. Önnur lagaleg útgáfa er því afbökun á þeirri ákvörðun Guðs, skapara himins og jarðar, að eiginmaður og eiginkona skuli stofna til hjúskapar og láta hann endast unz dauðinn aðskilur.
Það sem er sorglegt og andkristið við hið nýja frumvarp er það að telja til mannréttinda að tveir karlar og tvær konur geti gegnt sama hlutverki og hjón. Í hjónabandi er vagga framtíðarkynslóðar landsins og þar er vaxtarbroddur mannkyns. Í hjónabandi er einnig besta skjól barnsins.
Þessi nýja löggjöf er því bæði afbökun á íslenskri tungu, orðinu hjón og hjúskapur sem og kristinni trú.
Við viljum skora á Alþingi að í stað þess að útþynna grunngildi fjölskyldunnar og hornstein samfélagsins að þá komi í stað endurreisn kristinna gilda í íslensku samfélagi. Það myndi varpa vonarbirtu á framtíð þessa lands."
f.h. safnaðarhirða hvítasunnukirkjunnar
Snorri Óskarsson

Flettingar í dag: 221
Gestir í dag: 114
Flettingar í gær: 216
Gestir í gær: 117
Samtals flettingar: 87078
Samtals gestir: 39238
Tölur uppfærðar: 8.9.2010 21:12:40